Anna Hrefna Ingimundardóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) en hún hefur gegnt starfi forstöðumanns efnahagssviðs samtakanna frá árinu 2020. Anna Hrefna tekur við stöðunni af Ásdísi Kristjánsdóttur sem var á dögunum kosin oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi. Páll Ásgeir Guðmundsson tekur við sem forstöðumaður sameinaðs efnahags- og samkeppnishæfnissviðs SA. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef samtakanna.

Áður en Anna Hrefna hóf störf hjá SA vann hún við sérhæfðar fjárfestingar hjá Eldhrímni ehf. Þar áður starfaði hún sem efnahagsgreinandi hjá greiningardeild Arion banka og sem lánastjóri á fyrirtækjasviði bankans. Hún starfaði um margra ára skeið  við greiningar á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum. Hún er með BA og MA-gráður í hagfræði frá New York University. Hún hefur auk þess réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlari.

Páll Ásgeir Guðmundsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður sameinaðs efnahags- og samkeppnishæfnissviðs og mun hefja störf í maí. Hann hefur undanfarin fimm ár starfað sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fyrst í forsætisráðuneytinu og frá haustinu 2017 í fjármála- og efnahagráðuneytinu.

Páll var áður framkvæmdastjóri Telmar á Íslandi og gegndi starfi sviðsstjóra markaðs- og viðhorfsrannsókna hjá Gallup. Páll er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA:

„Framundan eru krefjandi kjarasamningaviðræður og íslenskt atvinnulíf stendur frammi fyrir mörgum áskorunum. Þau Anna Hrefna og Páll Ásgeir hafa áunnið sér mikið traust með fjölbreyttum störfum sínum og við fögnum því að fá að njóta krafta þeirra í nýjum hlutverkum. Við væntum mikils af þeim í störfum fyrir fyrirtækin í landinu í samstarfi við þann öfluga hóp sem starfar hjá Samtökum atvinnulífsins.“