Pálmar Óli Magnússon
Pálmar Óli Magnússon
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Stjórn Samskipa hefur ráðið Pálmar Óla Magnússon í stöðu forstjóra Samskipa hf.  Pálmar mun hefja störf hjá Samskipum þann 7. júlí n.k.  Fyrstu mánuðina í starfi mun hann sinna ýmsum verkefnum með aðsetur ýmist í Reykjavík eða Rotterdam. Pálmar tekur svo formlega við forstjórastöðunni eigi síðar en 1. október n.k.

Pálmar hefur áður unnið hjá Samskipum.  Á árunum 1998 – 2011 starfaði hann hjá félaginu fyrst sem deildarstjóri flutningastjórnunardeildar, síðan framkvæmdastjóri rekstrarsviðs erlendrar starfsemi, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og síðast framkvæmdastjóri millilandasviðs og staðgengill forstjóra.

Pálmar kemur til Samskipa frá Landsvirkjun þar sem hann hefur undanfarin þrjú ár starfað sem framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs.