Snjallsímaappið Uber, sem hefur ollið miklum usla í heimi leigubílstjóra, hefur nú hafið samstarf við Airbus. Samstarfið miðar að því að gera neytendum kleift að leigja sér þyrlu með einum hnappi.
Að sögn talsmanna Airbus er verkefnið aðeins til tilrauna eins og stendur. Fyrsta prufukeyrsla verður gerð á Sundance-kvikmyndahátíðinni í Utah í þessari viku.
Þá hefur Uber í raun og reynd áður gert tilraun til að veita viðskiptavinum sínum þyrluþjónustu, en árið 2013 bauð félagið upp á UberChopper ferðir milli Manhattan-eyju og Hampton-úthverfanna sunnar á Long Island.