IG Invest, hlutdeildarfélag Icelandair Group, hefur undirritað viljayfirlýsingu við Norwegian Air Shuttle þess eðlis að Norwegian gangi inn í pöntun félagsins á þremur B787 Dreamliner flugvélum frá Boeing. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Í tilkynningunni segir að samningurinn mun ekki hafa nein rekstrarleg áhrif á Icelandair Group. „Hins vegar mun Icelandair Group losna undan ábyrgð fyrir kaupsamningnum og fjármögnun vélanna.

IG Invest er eignarhaldsfélag um flugvélar og flugvélatengdar eignir. Eftir viðskiptin mun félagið eiga pöntun á einni B787 flugvél.“