Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, gat ekki verið viðstaddur afhendingu stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2013 sem afhent voru fyrir stundu. Hann sendi staðgengil sinn í staðinn, pappamynd í fullri stærð. Eins og sjá má á myndinni var pappa-útgáfan ánægð með verðlaunin.

Það var Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem afhenti verðlaunin.

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi og Egill Jónsson, framleiðslustjóri Össurar, hlutu jafnframt stjórnunarverðlaun Stjórnvísi. Þau voru afhent við hátíðlega athöfn í Turninum í Kópavogi í dag.