Banda­ríski fjár­fest­inga­sjóður­inn PAR Capital Mana­gem­ent held­ur áfram að selja hluti sína í Icelanda­ir. Sjóður­inn er nú kom­inn und­ir 11% hlut í fyr­ir­tæk­inu sem og hef­ur því selt tæp­lega 0,3% frá því hlut­hafalist­inn var síðast upp­færður. Mbl.is greinir frá.

PAR Capital Mana­gem­ent kom inn í hlut­hafa­hóp Icelanda­ir í fyrra við end­ur­fjár­mögn­un fé­lags­ins. Var hlut­ur fé­lags­ins þegar mest var 13,7%.