Nýtt samkomulag í loftslagsmálum náðist í París í gær en í því er kveðið á um framhald á Kýótó bókuninni svokölluðu þar sem tímabil skuldbindinga ríkja í þeirri bókun rennur út árið 2020.

„Ég fagna því að náðst hefur sögulegt og metnaðarfullt samkomulag í loftslagsmálum á Parísarfundinum og við munum leggja okkar af mörkum bæði hér heima og við að miðla þekkingu okkar og reynslu til annara þjóða,“ er haft eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra, í fréttatilkynningu frá Umhverfisráðuneytinu um málið.

Í tilkynningunni segir að Parísarsamkomulagið sé sérstakt lagalega bindandi samkomulag undir Loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna og er stefnt að formlegri undirritun þess í apríl á næsta ári. Það nær til aðgerða ríkja eftir 2020, en þá lýkur tímabili skuldbindinga ríkja í Kýótó-bókuninni. Innan við 15% af losun gróðurhúsalofttegunda er nú undir reglum Kýótó. Með hliðsjón af hinu nýja samkomulagi hafa nær öll ríki heims, með losun samtals vel yfir 90% af heimslosun, sent inn markmið sem verða hluti af Parísarsamkomulaginu.

Nokkur helstu atriði í samkomulaginu eru:

* Sett er markmið um að halda hlýnun lofthjúpsins vel innan við 2°C og jafnframt verður reynt að halda hlýnuninni innan við 1,5°C;

* Losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu skal ná hámarki „eins fljótt og auðið er“ og minnka síðan þannig að losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum nái jafnvægi við upptöku kolefnis úr andrúmsloftinu á síðari helmingi aldarinnar; tekið er fram að þróunarríki fái meira svigrúm en önnur að þessu leyti;

* Fara skal yfir stöðu mála á 5 ára fresti og í kjölfar þess skulu ríki senda inn endurnýjuð landsmarkmið; ný markmið eiga að vera eins metnaðarfull og viðkomandi ríki telur sig geta náð og alla jafna metnaðarfyllri en fyrri markmið í ljósi leiðsagnar vísindanna;

* Lofað er að fjármögnun loftslagsmála til þróunarríkja nái 100 milljörðum dollara árið 2020 og að hún haldi áfram eftir 2020 og minnki ekki eftir það;

* Settar eru fram kröfur um bókhald yfir nettólosun ríkja; ítarlegar kröfur eru nú um slíkt bókhald í Kýótó-bókuninni varðandi þróuð ríki. Í Parísarsamkomulaginu er gerð krafa um bókhald fyrir öll ríki, þótt kröfur á þróunarríki séu vægari;

* Viðurkennt er að bregðast þurfi við skaða sem fátæk ríki verða fyrir vegna neikvæðra áhrifa loftslagsbreytinga, bæði við að draga úr líkum á skaða og bregðast við tjóni sem verður.