Laun hækkuðu um 30% á almennum vinnumarkaði á árunum 2005-2008 en laun hækkuðu á tímabilinu mest hjá fjármála- og tryggingafélögum, eða um 39%.

Þá hækkuðu laun í framleiðslu og iðnaði um 29% og 20% í verslun og þjónustu.

Þetta kemur fram í nýrri launagreiningu ParX Viðskiptaráðgjafar IBM. frá ParX.

Þar kemur fram að laun hækkuðu um tæp 11% frá september 2007 til september 2008. Á því tímabili var hækkunin mest hjá hópum í sölu, afgreiðslu- og þjónustustörfum og í iðnaðar- og tæknistörfum, eða 15%.

Hækkunin var minnst í hópi ósérhæfðra starfsmanna, eða 4%. Þetta er svipuð hækkun og á árinu á undan en laun hækkuðu þá um 9% frá september 2006 til september 2007.

Til samanburðar má nefna að launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 30% frá 2005-2008. Þegar mælingar Hagstofunnar frá því í október 2008 eru skoðaðar hefur launavísitalan hækkað um að meðaltali 0,13% á síðustu þremur mánuðum ársins á móti 0,37% yfir sama tímabil 2007.

„Þessar tölur gefa til kynna að launaskriði síðustu ára á Íslandi sé lokið. Líklegt er að tölur sem sýna fram á launalækkanir komi fram á næstu vikum”, segir Jón Emil Sigurgeirsson umsjónarmaður Launagreininga ParX í tilkynningu frá félaginu.

Hann segir að launavísitala Hagstofunnar hafi einungis lækkað í fjórum mælingum sem eru gerðar á milli mánaða frá 1989, þar af var lækkun mest í október árið 1991, eða 1,2%.

„Það má því færa rök fyrir því að nú hafi skapast ný viðmið við launaákvarðanir á almennum vinnumarkaði miðað við tölur síðasta ársfjórðungs,“ segir Jón Emil.

„Niðurstöður sýna ekki lækkanir á launum enn sem komið er en gera má ráð fyrir að þær komi fram í launagreiðslum fyrirtækja fljótlega á árinu. Fyrirtæki hafa þurft að taka erfiðar ákvarðanir upp á síðkastið sem hafa haft bein áhrif á einstaka starfsmenn, þ.m.t. að segja upp starfsmönnum, að segja upp launalið starfssamninga eða að biðja starfsmenn að fara í hlutastörf og ekki er útséð um að þeim aðgerðum sé lokið.“