Meðallaun sérfræðinga hækkuðu um 3,4% frá september 2008 fram í febrúar 2009. Á sama tímabili lækkuðu meðallaun ófaglærðs starfsfólks um 4,7%, að því er fram kemur í Launagreiningu ParX.

Í kynningu frá ParX kemur fram að þegar laun sérfræðinga eru skoðuð sérstaklega kemur í ljós að meðallaun lögfræðinga hafa hækkað um 7,2% á meðan laun sérfræðinga í markaðsmálum hafa lækkað um 8,1%. Þá hækkuðu meðallaun fjármálastjóra um 5,6%.

Meðal ófaglærðra hefur launaþróun orðið með eftirfarandi hætti frá september 2008 fram í febrúar 2009: Meðallaun bílstjóra hækkuðu um 3%, laun starfsfólks í ræstingum lækkuðu um 0,7%, laun  starfsfólks í almennum sölu- og afgreiðslustörfum hækkuðu um 3,6% og laun starfsfólks í sérhæfðum sölu- og afgreiðslustörfum lækkuðu um 3,8%.

Í heild hækkuðu meðallaun allra starfshópa í Launagreiningu ParX um 1% frá því í september 2008 fram í febrúar 2009. Til samanburðar hækkuðu laun sömu hópa um 30% á almennum vinnumarkaði á árunum 2005-2008, samkvæmt gögnum frá ParX.

„Það má færa rök fyrir því að ný viðmið hafi skapast við launaákvarðanir á almennum vinnumarkaði miðað við niðurstöður ParX. Gögnin sýna að laun hafa staðið í stað eða lækkað hjá mörgum starfshópum,“ segir Brynja Bragadóttir fagstjóri rannsókna- og greiningasviðs hjá ParX viðskiptaráðgjöf í kynningunni.

Hún segir að þegar gera eigi breytingar á launum starfsfólks sé mikilvægt að stjórnendur hafi yfirsýn yfir laun á almennum markaði og að þeir geti borið laun einstakra starfshópa saman við laun annarra launþega í sambærilegum störfum innan sambærilegra fyrirtækja, t.d. fyrirtækja af svipaðri stærð og í sömu starfsgrein.

„Upplýsingar um launaþróun eru ekki síst mikilvægar nú, bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk, í ljósi þeirra aðstæðna sem nú ríkja í efnahagslífinu og með Launagreiningu ParX er hægt að veita fyrirtækjum mikilvæg viðmið, sem bæði má nýta í stefnumótandi vinnu og við einstaka launaákvarðanir. Ný launagreining verður framkvæmd í október 2009 og býðst öllum fyrirtækjum að taka þátt í henni,“ segir Brynja.

Launagreiningin, sem hefur verið framkvæmd árlega frá 1979, byggir á upplýsingum úr launakerfum íslenskra fyrirtækja. Könnunin er ekki viðhorfskönnun starfsmanna á almennum vinnumarkaði heldur er stuðst við gögn beint úr launakerfum og eru þau m.a. greind eftir starfsheitum, starfsgreinum og stærð fyrirtækja.