Páskabjórinn kemur í Vínbúðirnar á miðvikudag í næstu viku. Alls verða sjö tegundir af páskabjór í sölu þetta árið en þær eru; Víking páskabjór, Páskakaldi frá Bruggsmiðjunni, Víking Páska Bock, Páskagull frá Ölgerðinni, Gæðingur páskabjór, Jesús nr. 24 frá Borg og Þari páskabjór frá Brugghús Steðja.

Páskabjórinn verður í sölu fram til 19. Apríl, eftir því sem fram kemur á vef Vínbúðanna.  Þegar salan hefst er hægt að leita að viðkomandi tegund í vöruleitinni með því að haka við táknið Tímabundið í sölu.  Þannig er hægt að sjá í hvaða Vínbúðum varan fæst.