Payday, sem heldur úti bókhaldskerfi, hefur samið við Unimaze um sendingu og móttöku rafrænna reikninga fyrir viðskiptavini sína.

Payday, sem þróað er af hugbúnaðarfyrirtækinu Divot, er hugsað fyrir sjálfstætt starfandi aðila til að einfalda fyrir þeim reikningagerð og greiðslu launa. Um 300 viðskiptavinir Payday nýta sér í dag skeytamiðlun Unimaze og hefur þeim farið hratt fjölgandi frá því að samstarf fyrirtækjanna hófst, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Unimaze, áður Sendill, hefur ríflega 10 ára reynslu í skeytamiðlun hérlendis en er jafnframt með viðskiptavini um heim allan og starfsstöðvar í þremur Evrópulöndum. Viðskiptablaðið fjallaði um hraðan vöxt í miðlun reikninga hjá Unimaze, dótturfélags Origo, fyrir rúmu ári síðan en fyrirtækið hefur tvöfaldast þegar kemur að tekjum, starfsmönnum og fjölda reikninga á síðastliðnum tveimur árum.

Björn Hreiðar Björnsson, framkvæmdastjóri Payday:

„Við völdum Unimaze af því að félagið hefur verið í fararbroddi þegar kemur að stöðlum, áreiðanleika og tæknilegum lausnum. Unimaze er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði hvað varðar sendingu og móttöku rafrænna viðskiptaskjala. Fyrirtækið hefur verið í stöðugri sókn og á undanförnum tveimur árum hefur starfsemi þess vaxið um eða yfir 100%. Sýn Payday og Uminaze á markaðinn er á margan hátt sú sama en bæði fyrirtækin leggja áherslu á framúrskarandi tæknilausnir og góða þjónustu.“

Einar Geir Jónsson, framkvæmdastjóri Unimaze:

„Við erum ákaflega stollt af því að vera treyst fyrir því mikilvæga verkefni að tryggja notendum Payday alla nýjustu og helstu möguleika sem fyrir hendi eru hverju sinni til að njóta alls þess hagræðis sem í boði er við færslu bókhalds í dag. Þekking og reynsla Unimaze og vilji til að skara fram úr það sem tryggir í þessu tilviki okkur samstarf við eitt nýjasta og mest vaxandi bókhaldskerfi landsins. Þetta er mikill heiður fyrir okkar starf og mikil hvatning fyrir okkur að halda áfram á sömu braut. Það hefur verið sérlega gaman að vinna með Payday enda er nálgun þeirra framsækin þar sem öll áhersla er á sjálfvirkni sem fellur algjörlega að sýn Unimaze á veröldina.“