Peningamagn í umferð jókst lítillega í vor og í sumar en samkvæmt nýjustu tölum Seðlabankans voru um 19,8 milljarður króna í lausafé í umferð hér á landi í september.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðlabankans um peningamagn í umferð en þær tölur ná fram í september á þessu ári. Í júlí voru um 20 milljarða króna í umferð

Eins og sést á töflunni hér til hliðar, sem byggð er á tölum Seðlabankans, eru 20 milljarðar þó nokkuð yfir meðaltali ef litið er til s.l. tveggja ára. Þar sést peningamagn í umferð s.l. 24 mánuði og eins og sjá má var hefðbundið magn peninga í umferð á milli 11 og 13 milljarðar króna fram að hruni bankanna í október í fyrra.

Eins og sjá má á myndinni jókst magn peninga í umferð gífurlega í október eða um tæp 90% þegar magn peninga í umferð fór frá því að vera tæpir 12,6 milljarðar króna í september í það að vera um 23,7 milljarðar króna í október.

Síðan þá minnkaði peningamagn í umferð jafnt og þétt fram á vor, að janúar undanskildum, en peningamagn hefur, þrátt fyrir hækkun síðustu mánaða, minnkað um 16,5% frá hruninu í október í fyrra.

Þó svo að myndin sýni aðeins þróunina síðustu tvö árin hefur verið lítið og hæg aukning á magni peninga í umferð síðustu árin. Í september 2007 voru um 11,8 milljarðar króna í umferð hér á landi, í september 2006 var það  um 10,2 milljarðar og í september 2005 voru um 9,7 milljarðar króna í umferð.