Peningamagn í umferð heldur áfram að lækka en samkvæmt Hagtölum Seðlabankans voru rétt rúmir 16 milljarðar króna í umferð á Íslandi í maí síðastliðnum en nýjustu tölur Seðlabankans ná til maí.

Eins og sést á töflunni hér til hliðar eru 16 milljarðar þó nokkuð yfir meðaltali. Þar sést peningamagn í umferð s.l. 24 mánuði og eins og sjá má var hefðbundið magn peninga í umferð á milli 11 og 13 milljarðar króna fram að hruni bankanna í október s.l.

Eins og sjá má á myndinni jókst magn peninga í umferð gífurlega í október eða um tæp 90% þegar magn peninga í umferð fór frá því að vera tæpir 12,6 milljarðar króna í september í það að vera um 23,7 milljarðar króna í október.

Síðan þá hefur magn peninga í umferð minnkað jafnt og þétt eins og sjá má á myndinni að janúar undanskildum þegar magn peninga í umferð jókst lítillega milli mánaða. Þannig hefur peningamagn í umferð minnkað um 32% frá því í október.

Þó svo að myndin sýni aðeins þróunina síðustu tvö árin hefur verið lítið og hæg aukning á magni peninga í umferð síðustu árin. Í maí 2007 voru um 11,4 milljarðar króna í umferð hér á landi, í maí 2006 var það  um 10,3 milljarðar og í maí 2005 voru um 8,9 milljarðar króna í umferð.