Peningamagn í umferð jókst lítillega í vor og í sumar en samkvæmt nýjustu tölum Seðlabankans er nú um 20,1 milljarður króna í lausafé í umferð hér á landi. Tölur Seðlabankans um bankakerfið ná fram í júlí á þessu ári en í maí s.l. voru um 18,1 milljarður króna í umferð hér á landi.

Eins og sést á töflunni hér til hliðar eru 20 milljarðar þó nokkuð yfir meðaltali ef litið er til s.l. tveggja ára. Þar sést peningamagn í umferð s.l. 24 mánuði og eins og sjá má var hefðbundið magn peninga í umferð á milli 11 og 13 milljarðar króna fram að hruni bankanna í október í fyrra.

Eins og sjá má á myndinni jókst magn peninga í umferð gífurlega í október eða um tæp 90% þegar magn peninga í umferð fór frá því að vera tæpir 12,6 milljarðar króna í september í það að vera um 23,7 milljarðar króna í október.

Síðan þá minnkaði peningamagn í umferð jafnt og þétt fram á vor, að janúar undanskildum, en peningamagn hefur, þrátt fyrir hækkun síðustu mánaða, minnkað um 15,2%.

Þó svo að myndin sýni aðeins þróunina síðustu tvö árin hefur verið lítið og hæg aukning á magni peninga í umferð síðustu árin. Í maí 2007 voru um 11,4 milljarðar króna í umferð hér á landi, í maí 2006 var það  um 10,3 milljarðar og í maí 2005 voru um 8,9 milljarðar króna í umferð.