Samdráttur síðasta árs var minni en áður hafði verið reiknað með og vísbendingar eru um að einkaneysla verði sterkari næstu misseri.

Fjárfesting verður hins vegar veikari á þessu ári vegna frekari seinkunar stóriðjufjárfestingar og meiri samdráttar annarrar atvinnuvegafjárfestingar. Efnahagsbata seinkar því um einn ársfjórðung, til þriðja ársfjórðungs þessa árs.

Þetta kemur fram í peningamálum Seðlabankans sem birt voru í dag. Seðlabankinn segir að samkvæmt því muni efnahagssamdrátturinn hér á landi vara í tíu ársfjórðunga sem er lengra en í öðrum iðnríkjum.

„Þótt efnahagsbata seinki frá því sem spáð var í janúar, veldur kröftugri einkaneysla því að landsframleiðsla dregst minna saman á þessu ári en þá var spáð. Jafnframt eru horfur á hægum vexti á næstu tveimur árum,“ segir í peningamálum.

Þá kemur fram að sveigjanleiki á vinnumarkaði hafi verið töluvert meiri en áður hafði verið gert ráð fyrir. Þannig hafi atvinna dregist meira saman á síðasta ári og launakostnaður jókst mun minna en reiknað var með í janúar.

„Sveigjanleikinn hefur líklega átt ríkan þátt í að vega á móti meiri verðbólguþrýstingi sakir gengislækkunar og komið í veg fyrir að atvinnuleysi ykist meira en raun ber vitni,“ segir í peningamálum.

Þá segir Seðlabankinn að útlit sé fyrir að gengi krónunnar verði heldur sterkara á spátímanum en spáð var í janúar. Tiltölulega stöðugt gengi og vannýtt framleiðslugeta muni stuðla að áframhaldandi hjöðnun verðbólgu.