PepsiAmericas og PepsiCo hafa keypt 80% í úkraínska drykkjarframleiðandanum Sandora en fyrirtækið er stærsti drykkjarframleiðandi landsins. Pepsi borgar 542 milljónir Bandaríkjadala fyrir hlutinn og mun kaupa hin tuttugu prósentin í nóvember. Hermt er að Pepsi hafi haft betur en Coca-Cola í tilboðinu um hlutinn Sandora. Úkraína er sá markaður fyrir drykkjarvörur sem vex hvað hraðast í Evrópu um þessar mundir en í landinu búa 48 milljónir manna.