Pétur H. Blöndal, alþingismaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar og sækist eftir 2. sæti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pétri.

Pétur stundaði nám í raunvísindum við Kölnarháskóla þaðan sem hann lauk doktorsprófi í líkinda- og tryggingarstærðfræði árið 1973. Pétur hefur kennt bæði við háskóla og framhaldsskóla og hann rak Lífeyrissjóð verslunarmanna í 7 ár.

Þá var hann einn af stofnendum Kaupþings og rak það í 7 ár.

Pétur var fyrst kjörinn til Alþingis árið 1995 og var formaður efnahags- og skattanefndar frá 2003 til 2009 auk þess að vera sérlegur fulltrúi forseta hins alþjóðlega ÖSE þings í fjármálum.

Þá kemur fram í tilkynningunni að sem þingmaður hafi Pétur m.a. flutt frumvörp um flatan tekjuskatt, afnám sjómannaafsláttar, dreifingu kvótans á alla þegna landsins og afskrift hans á löngum tíma hjá útgerðinni og frumvörp um að þingmenn hafi sömu lífeyrisréttindi og almenningur í landinu.

„Ég vil nota krafta mína, þekkingu og reynslu til að koma í veg fyrir að Icesave málið og jöklabréfin steypi þjóðinni í áratuga fátækt,“ segir Pétur í tilkynningunni.

„Það gagnast engum, síst af öllu þeim sem gera til okkar óbilgjarnar kröfur. Ég er á móti skattahækkunum og tel að gæta verði þess að hér verði áfram öflugt velferðakerfi. Nauðsynlegum sparnaði í ríkisútgjöldum á fyrst og fremst að ná með aukinni skilvirkni en ekki með minni aðstoð við þá sem helst þurfa á henni að halda.“

Þá segist Pétur ekki síður ætla að nýta reynslu sína af fjármálum og þekkingu á bankastarfsemi til þess að setja bankana aftur í gang og þar með atvinnulífið allt og koma þannig í veg fyrir það mikla atvinnuleysi sem við búum við.

„Atvinnuleysi er eitt mesta böl sem einstaklingar, fjölskyldur og samfélög lenda í,“ segir Pétur.

„Mjög mikilvægt er að upplýst verði um möguleg lögbrot í efnahagskerfinu í aðdraganda hrunsins og refsað fyrir þau. Ég mun nýta reynslu mína og þekkingu á störfum Alþingis í viðskipta- og skattamálum til að bæta lög og reglur og framkvæmd þeirra að fenginni reynslu af því sem fór úrskeiðis t.d. með því að skerpa á reglum um framvirka samninga og auka gegnsæi og bæta siðferði í starfsemi hlutafélaga.“

Þá segir Pétur jafnframt um þrískiptingu valdsins:

„Ég tel mjög brýnt og ég mun einbeita mér að því að Alþingi verði sterkara gagnvart ríkisstjórn t.d. með því að þingnefndir semji eða láti semja öll lög sem Alþingi afgreiðir. Ég mun benda á og vinna gegn flokksræði. Einnig þarf að skoða hvort ráðherrar eigi að afsali sér þingmennsku tímabundið og að þingmönnum verði jafnframt fækkað í 51. Ég vil stuðla að endurskoðun á stjórnarskránni með þessi og mörg fleiri markmið í huga.“