Pétur Jóhann Sigfússon, sem m.a. er þekktur fyrir að leika Ólaf Ragnar í Vaktaþáttaröðunum, hefur verið ráðinn til 365, þar sem hann mun starfa að íslenskri dagskrárgerð.

Í tilkynningu segir að hann vinni nú þegar að sjónvarpsþáttum í samvinnu við Jón Gnarr. Þættirnir bera vinnuheitið Borgarstjórinn. Þar mun Pétur leika aðstoðarmann borgarstjórans í Reykjavík sem leikinn verður af Jóni. Vinna við þættina er sögð ganga vel og verða þeir sýndir á Stöð 2 haustið 2016.

Í tilkynningunni er haft eftir Jóni Gnarr, ritstjóra innlendrar dagskrár hjá 365, að hann hlakki mikið til að fá Pétur Jóhann til samstarfs. Unnið sé að því að efla og styrkja íslenska dagskrárgerð og þar gegni Pétur Jóhann lykilhlutverki.