Pétur H. Blöndal alþingismaður styður ekki frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um höfuðstólslækkun íbúðaskulda. Fréttablaðið greinir frá því að Pétur hafi lýst þessu yfir á Alþingi í gær.

Þar með hafa tveir af þremur fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og viðskiptanefnd tilkynnt að þeir styðji ekki frumvarpið. Vilhjálmur Bjarnason hefur einnig lagst gegn því.

Auk þeirra tveggja situr Ragnheiður Ríkharðsdóttir í nefndinni.