Pétur Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Pétur er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Reykjavík í ný afstöðnum sveitarstjórnarkosningum og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi á síðasta kjörtímabili. Hann hefur jafnframt starfað á undanförnum árum við markaðsmál, ritstjórn, þýðingar og stundakennslu.

Pétur hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í dag.