Pétur Thor Gunnarsson hefur verið ráðinn sölu- og markaðsstjóri hjá Freyju. Hann starfaði áður hjá Ölgerðinni sem sölu- og rekstrarstjóri.

Pétur Thor er alþjóðamarkaðsfræðingur að mennt, en hann starfaði í rúm átján ár við hin ýmsu störf hjá Ölgerðinni. Í gegnum árin hefur hann komið að þjónustu við viðskiptavini á öllum stigum og má þar nefna áfyllingar í verslunum, sölumennsku, sölustjórnun, áætlunargerð og umsjón lykilviðskiptavina.

Freyja er fyrirtæki í sókn með frábærar vörur sem margar hverjar hafa verið mínar uppáhaldsvörur frá því í barnæsku. Hundrað ára afmæli Freyju er á næsta leiti, eigendurnir eru metnaðarfullir og mikill hugur er í mönnum að ná langt og því er það einstaklega spennandi tækifæri að taka þátt í þessari sókn. Þettar er algjör draumur maður, eins og þar segir,“ segir Pétur.

Pétur er með B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er giftur Erlu Rós Gylfadóttur hugbúnaðarsérfræðingi hjá Orkuveitunni og eiga þau þrjú börn.