Pétur Pétursson hefur verið ráðinn sem sölustjóri á fyrirtækjasviði Valitor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Pétur hefur fjölþætta reynslu úr atvinnulífinu. Hann kemur til starfa hjá Valitor frá Viss ehf. þar sem hann var meðal stofnenda. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri auglýsingstofunnar Fíton ehf. framkvæmdastjóri tekjusviðs 365 miðla hf. og framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Að auki var hann fréttamaður um árabil á DV, RÚV og Stöð 2/ Bylgjunni, forstöðumaður ytri og innri samskipta hjá Íslandssíma og síðar Vodafone og ráðgjafi ýmissa fyrirtækja í almannatengslum.

Pétur er með BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og leggur stund á MBA nám við Háskólann í Reykjavík. Pétur er giftur Hildi Ómarsdóttur, forstöðumanni markaðs- og viðskiptaþróunar hjá Icelandair hótelum.