Hver er rekstrargrundvöllur Hörpu næstu 30 árin, tekjur og gjöld með og án afskrifta sem og sjóðstreymi? Þingmaðurinn Pétur Blöndal spurði á Alþingi í gær Katrínu Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra ,fjölmargra spurninga um rekstur tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu.

Spurningar Pétur eru eftirfarandi:

  • Hve háum fjárhæðum hefur ríkissjóður varið árlega til reksturs Hörpu frá því að bygging hússins hófst? Hvert er framlagið áætlað 2013? Hverjar hafa verið tekjur, gjöld og sjóðstreymi á verðlagi hvers árs og uppreiknað miðað við vísitölu neysluverðs til mars 2013?
  • Hafa framlög ríkisins til stofnana sem eru með rekstur í húsinu hækkað vegna flutnings þeirra þangað og ef svo er, hversu mikið?
  • Hve há voru framlög ríkisins til tækjakaupa í Hörpu og hvað gerðu áætlanir ráð fyrir að verja mætti háum fjárhæðum til þeirra?
  • Hvað er gert ráð fyrir háum fjárhæðum árlega til viðhalds hússins næstu 30 árin?
  • Hve mikið kostaði glerhjúpur hússins og hver er árlegur rekstrar- og viðhaldskostnaður hans?
  • Hvers vegna hefur rekstraráætlun hússins, sem Ríkisendurskoðun fór á sínum tíma yfir og taldi í lagi, ekki gengið eftir og hver eru stærstu frávikin?
  • Getur ríkissjóður hætt við skuldbindingu vegna samningsins frá 19. febrúar 2009 um að halda áfram framkvæmdum? Er ekki um að ræða sambærilega skuldbindingu og skv. 40. og 41. gr. stjórnarskrárinnar sem taka verður fram í fjárlögum?