Póst og fjarskiptastofnun hefur úthlutað farsímafyrirtækjunum Nova, Símanum og Sýn 5G fjarskiptatíðnum hér á landi, en 5G þjónusta Nova fór í loftið í dag. Prófanir höfðu staðið yfir hjá fyrirtækinu í rúmt ár en 5G sendum Nova mun fjölga jafnt og þétt á næstunni.

Félagið segir að þegar séu komin á markaðinn ýmis tæki sem styðja 5G og fljótlega munu flest ný tæki og farsímar geta nýtt sér 5G. 5G hefur verið að ryðja sér hratt til rúms á stærstu þéttbýlissvæðum heims en hraði og flutningsgeta gagna með 5G er um tífalt meiri en á 4G kerfinu.

Uppbygging 5G hleypur á milljörðum króna

Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, segir að þess verði ekki langt að bíða þar til meirihluti Íslendinga geti notað 5G, en hún segir að heildarkostnaðurinn við uppbyggingu á 5G fjarskiptakerfi Nova hlaupi á milljörðum króna.

„Það skilja allir hvaða áhrif aukinn nethraði getur haft. Framfarir á þessu sviði hafa reglulega valdið byltingu í því hvernig við vinnum, njótum afþreyingar og eigum samskipti,“ segir Margrét.

„Það er mjög mikilvægt fyrir fólk og fyrirtæki á Íslandi að tæknilegir innviðir okkar séu á pari við það sem best gerist í heiminum því samfara aukinni flutningsgetu og hraða í fjarskiptum verða til tækninýjungar og nýsköpun sem erfitt er að sjá fyrir. Kórónaveirufaraldurinn hefur flýtt þróuninni og kröfur hafa stóraukist um að geta unnið óheft og hvar sem er í gegnum netið.“

Hægt að hlaða niður kvikmyndum á augabragði

Margt sem við þekkjum mun breytast með tilkomu 5G. Ofurhröð stöðug sítenging verður veruleikinn, jafnvel í miklum mannfjölda og þar sem mikið álag er á fjarskiptum. Hægt verður að spila fjölspilunarleiki hvar sem er og hlaða niður kvikmyndum á augabragði.

Borgir geta orðið snjallborgir þar sem samgöngur, byggingar og fólk er allt samtengt. Þannig geta öll tækin, sem við notum, tengst í bakgrunninum og skipst á upplýsingum um þarfir okkar þannig að við eyðum minni tíma í að stjórna þeim og fáum meiri tíma til að sinna hugðarefnum okkar.

Talið er að þessi sítenging tækja muni auka þörf fyrir gagnaflutninga tí- eða tuttugufalt á skömmum tíma. 5G mun að jafnaði skila 150-200 megabita hraða á sekúndu (Mbps) en fara reglulega upp fyrir 1000 megabit á sekúndu (1Gbps). Þessi hraði í gagnaflutningum gerir mögulegt að framkvæma ýmsa hluti sem lengi hafa verið taldir til vísindaskáldskapar, svo sem að eiga símtöl í heilmynd (hologram).

Stærstu íbúasvæði landsins 5G vædd fyrir árslok 2021

Úthlutun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) á 5G tíðnum til fjarskiptafyrirtækja mun einungis gilda til skamms tíma eða til loka árs 2021. Endurnýjun tíðniheimildanna mun ráðast af því hvort viðmið PFS hafi verið uppfyllt, en stjórnvöld leggja áherslu á hraða 5G væðingu stærstu þéttbýliskjarna landsins.

PFS reiknar með að fyrir árslok 2021 geti allt að níu þéttbýliskjarnar á landbyggðinni, auk höfuðborgarsvæðisins, vænst þess að hafa aðgang að 5G þjónustu, þ.e. meðaltalsgagnflutningshraða upp á 200 Mb/s. Búist er við að sá hraði haldi áfram að aukast samfara uppbyggingunni og að flestir þéttbýliskjarnar muni hafa aðgang að 5G í framtíðinni.

Samsung og OnePlus þegar komnir með 5G síma

Samsung og OnePlus hafa nú þegar komið með síma á markað sem styðja 5G og fást þeir hjá Nova. Nú þegar opnað hefur verið fyrir 5G tíðnir á Íslandi er þess að vænta að framleiðendur þessara tækja opni fyrir 5G notkun á Íslandi. Fyrr er ekki hægt að nota þau á 5G.

iPhone, sem er einn vinsælasti farsíminn hér á landi, styður ekki 5G að svo stöddu en fastlega er búist er við að Apple kynni iPhone með 5G í haust. Almenningi býðst hins vegar að koma og prófa þennan mikla 5G hraða í fartölvu og síma á 5G netinu í verslun Nova í Lágmúla 9.

Nova stefnir á hraða uppbyggingu 5G kerfisins. Nova hóf fyrst prófanir á 3G hér á landi árið 2006, fyrirtækið var fyrst með 4G þjónustu árið 2013 og 4.5G þjónustu árið 2017. Fyrirtækið hóf í febrúar 2019 prófanir á 5G og nú þegar fyrirtækinu hefur formlega verið úthlutað tíðnum getur Nova veitt almenningi 5G þjónustu.

Huawei frá Kína er samstarfsaðili Nova

Samstarfsaðili Nova í uppbyggingu 5G fjarskiptakerfisins er kínverska fyrirtækið Huawei Technologies en Huawei er leiðandi í þróun háhraða farsímatækni og hefur gert samning við mörg stærstu fjarskiptafyrirtæki í heiminum um 5G uppbyggingu.

Nova mun samhliða innleiðingunni á 5G byrja að fasa út 3G fjarskiptakerfi fyrirtækisins og gerir ráð fyrir að taka niður síðasta 3G sendinn fyrir lok árs 2023