Stofnanafjárfestar í Marks & Spencer segja að tilboð Philip Greens í félagið sé of lágt og að hann þurfi að hækka það verulega til að þeir hugi að sölu.

Green hefur ekki gert formlegt tilboð í hlutabréf Marks & Spencer, en hann hefur hins vegar lýst því yfir að hann sé tilbúinn til greiða 290-310 pens á hlut auk 25% hlutar í Revival, sem verður skráð á hlutabréfamarkað innan skamms. Sérfræðingar hafa metið að tilboð Greens jafngildi um 380-400 pensum á hlut.