Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga mun standa fyrir hádegisverðarfundi þann á morgun um skattlagningu í ferðaþjónustu.

Í tilkynningu frá félaginu segir að ferðamannaiðnaðurinn sé einn mest vaxandi iðnaður landsins og sé orðinn stærsta einstaka atvinnugrein landsins. Skattlagning á atvinnugreinina í formi virðisaukaskatts hafi verið mikið til umræðu og sé breytinga að vænta í þeim efnum. Á fundinum verði reynt að svara því hvaða áhrif þessar breytingar muni hafa á ferðaþjónustuna og einstakar greinar innan hennar.

Á fundinum taka til máls Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, Jón Bjarni Steinsson og Árni Sverrir Hafsteinsson, höfundar skýrslu um skattaumhverfi í ferðaþjónustu og Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar.

Fundurinn verður haldinn á Grand hótel frá kl. 12-13:15 á morgun og er öllum opinn gegn greiðslu þátttökugjalds. Skráning fer fram hér .