Auglýsinga- og markaðsfyrirtækið Pipar\TBWA hefur sameinast The Engine. Stofnandi The Engine, Kristján Már Hauksson, mun starfa áfram með nýjum eigendum og eignast hlut í sameinuðu félagi. The Engine sérhæfir sig í markaðssetningu á netinu og hefur verið leiðandi á því sviði um árabil og vaxið ört síðustu ár segir í fréttatilkynningu.

„Sameiningin við The Engine er í takt við markmið Pipars\TBWA um að styrkja félagið enn frekar á sviði netmarkaðssetningar og bæta við sig þekkingu og reynslu til þess að geta boðið viðskiptavinum okkar eins víðtæka þjónustu og mögulegt er,“ segir Guðmundur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Pipars\TBWA. Guðmundur kom í ítarlegt viðtal við Viðskiptablaðið á dögunum.

„Eftirspurnin eftir alhliða netmarkaðssetningu eykst sífellt, en að sama skapi breytist landslagið ört og krefst aukinnar sérhæfingar og sérþekkingar. Með sameiningunni við The Engine verðum við enn betur í stakk búin til þess að sinna fleiri, stærri og flóknari verkefnum fyrir viðskiptavini okkar hér á landi og erlendis,“ segir Guðmundur.

Kristján Már hefur áralanga reynslu af netmarkaðssetningu, haldið námskeið og skrifað bækur. Undir hans stjórn hefur The Engine náð fótfestu á erlendum mörkuðum og unnið með viðskiptavinum, m.a. Destination Canada, Domino’s-pizzukeðjunni á Norðurlöndum, fjármálarisanum Santander og símafyrirtækjunum Vodafone IoT og Sonotel.

The Engine hefur einnig aðstoðað fjölmörg íslensk fyrirtæki við að koma vörum og þjónustu á framfæri á erlendum mörkuðum með sérhönnuðum herferðum segir jafnframt í tilkynningunni. „Við erum einstaklega spennt yfir því að verða hluti af Pipar\TBWA. Í því felast margþætt tækifæri til vaxtar og samlegðaráhrif eru töluverð,“ segir Kristján Már.

Eins og er starfa sjö manns hjá The Engine og mun hluti þeirra starfsmanna flytjast yfir til Pipars\TBWA á næstu dögum, en hluti þeirra er staðsettur erlendis. Pipar\TBWA er ein stærsta auglýsingastofa landsins og hjá fyrirtækinu starfa 55 manns. Félagið er einnig hluthafi í nýsköpunarfyrirtækinu Ghostlamp, sem sérhæfir sig í áhrifavaldamarkaðssetningu á samfélagsmiðlum og á netinu.