„Þingflokkur Pírata skorar því á alla aðra flokka á Alþingi að verða við þessu ákalli, sem og ákalli forseta Íslands við þingsetningu, og samþykkja nýja stjórnarskrá áður en þing verður rofið og gengið til kosninga sem þarf að verða eins fljótt og auðið er,“ segir í yfirlýsingunni.

„Opinberun á valdníðslu gagnvart þolendum kynferðisofbeldis hefur haft djúpstæð áhrif á okkur öll. Framganga Bergs Þórs Ingólfssonar sem og annarra aðstandenda og þolenda kynferðisbrota er birtingamynd þess hvernig einstaklingar geta haft áhrif og breytt samfélaginu. Við dáumst að hugrekki og heilindum þeirra sem stigið hafa fram.

Þetta sýnir að almenningur ræður og almenningur, fyrir fimm árum síðan, valdi nýja stjórnarskrá. Sjálfstæðisflokkurinn hefur með framgöngu sinni sýnt fram á að hann er óstjórntækur.“