Píratar hafa auglýst eftir framkvæmdastjóra. Í auglýsingunni sem var birt á Facebook segja þeir að vegna anna þurfi þeir að ráða metnaðarfullan einstakling sem sé tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni.

Sérstakleg er tekið fram að um sé að ræða full starf með óreglulegum vinnutíma, oft sé rólegt yfir daginn en kvöld og helgar detti frekar inn. Einnig er það gert sem skilyrði að viðkomandi sé Pírati eða tilbúinn að verða Pírati.