Á þingflokksfundi Pírata sem lauk fyrir stundu var einróma samþykkt ný stjórn þingflokksins að því er segir í fréttatilkynningu. Nýr þingflokksformaður er Einar Brynjólfsson en hann var áður varaformaður. Birgitta Jónsdóttir verður varaformaður í hans stað og Smári McCarthy tekur við sem ritari.

Vinna stendur yfir hjá þingflokknum við endurskipulagningu á hlutverki stjórnar þingflokksins. Ásta Guðrún Helgadóttir sendi frá sér tilkynningu á Facebook fyrr í dag þess efnis að hún hefði stigið til hliðar vegna ágreinings við meirihluta þingflokksins um innra skipulag eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um .

Í fréttatilkynningunni er þó fullyrt að ekki sé um neinn málefnaágreining að ræða, en Ásta Guðrún heldur áfram störfum sem þingmaður Pírata. Einar Brynjólfsson er sjöundi þingmaður Norðausturkjördæmis. Hann hef lengst af starfað sem kennari, þar af síðustu sjö ár við Menntaskólann á Akureyri.

Þingflokkur Pírata eftir kosningarnar haustið 2016
Þingflokkur Pírata eftir kosningarnar haustið 2016
© Aðsend mynd (AÐSEND)