Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla, sem framleiðir spurningaleikinn QuizUp, mun loka skrifstofu sinni á Íslandi. Starfsfólki var sagt frá fyrirhugaðri lokun fyrirtækisins í morgun og fengu allir 36 starfsmenn uppsagnarbréf.  Vonir stóðu til að reksturinn yrði sjálfbær þegar notendum fjölgaði samhliða áætlaðri frumsýningu sjónvarpsþáttaraðar undir merkjum QuizUp á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC næsta vor en þegar ljóst var að ekki yrði af framleiðslu þáttarins brustu rekstrarforsendur til frekari fjármögnunar og þróunar á QuizUp hér á landi.

Tilkynnt var um það síðasta haust að Plain Vanilla og NBC hefðu náð samkomulagi um framleiðslu spurningaþáttar að nafni QuizUp og átti þátturinn að hefja göngu sína á NBC þann 5. mars nk. Búið var að panta 13 þætti sem áttu að vera á dagskrá á sunnudagskvöldum kl. 19:00 vestanhafs og hafði starfsfólk frá Plain Vanilla unnið að þróun þáttarins, bæði hér heima og í stúdíói sjónvarpsrisans í Hollywood, síðustu mánuði. Að auki var búið að selja sýningarrétt þáttarins til helstu markaðssvæða eins og Bretlands, Frakklands, Chile, Argentínu og Nýja-Sjálands.

Í janúar á þessu ári bárust fréttir þess efnis að Glu Mobile Inc. hefði ákveðið að fjárfesta fyrir að 7,5 milljónum bandaríkjadala í fyrirtækinu. Var markmiðið að fyrirtækin myndu vinna saman að þróun OuizUp sjónvarpsþáttarins. Fyrirtækið hafði áður sagt upp 27 manns í apríl  og 14 manns í janúar sl. en þá sagði Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla að uppsagnirnar væru liður í endurskipulagningu fyrirtækisins sem hugðist leggja meiri áherslu á starfsemi sína í Los Angeles þar sem þróun þáttarins fór fram.

Þorsteinn segir í yfirlýsingu: „Við höfum alltaf lagt mikið undir og uppskorið eftir því. Í þetta skiptið þá veðjuðum við á viðamikið samstarf við sjónvarpsrisann NBC. Segja má að við höfum sett of mörg egg í þessa NBC körfu en við höfum eytt miklum tíma og orku í þróun sjónvarpsþáttarins. Þegar ég fékk skilaboðin frá NBC um að hætt yrði við framleiðslu þáttarins þá varð um leið ljóst að forsendur fyrir frekari rekstri, án umfangsmikilla breytinga, væru brostnar. Eftir stendur að síðustu ár hafa verið ótrúlegt ævintýri fyrir mig og alla þá sem komu að Plain Vanilla. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vinna með ótrúlega hæfileikaríku fólki á þessari vegferð. Ég er spenntur að sjá hvað starfsfólk Plain Vanilla tekur sér fyrir hendur í framtíðinni og er handviss um að fjöldi nýrra fyrirtækja verður stofnaður af þessum hóp sem hefur fengið frábæra reynslu hjá okkur undanfarin ár.”