Forsvarsmenn Plain Vanilla segja að gagnrýni á Plain Vanilla sem birtist í gær sé skrifuð af samkeppnisaðila. VB.is hefur ekki náð símasambandi við Þorstein Baldur Friðriksson framkvæmdastjóra Plain Vanilla þrátt fyrir tilraunir. Í fréttatilkynningu sem Andrés Jónsson almannatengill sendi fyrir hönd Plain Vanilla er greinahöfundur, Kyle Richter, sakaður um rangfærslur í skrifum sínum.

„Í greininni segir hann QuizUp senda gögn í ódulkóðuðum textaskrám. Þetta er ekki rétt. Gögn eru aldrei send ódulkóðuð til eða frá netþjónum Plain Vanilla. Öll samskipti á milli QuizUp notenda og netþjóna Plain Vanilla eru kóðuð með SSL-dulkóðun. Vegna galla í hugbúnaðarsafni frá þriðja aðila var þessi dulkóðun ekki fullnægjandi í örfáum tilvikum. Tekið hefur verið á þessu vandamáli með uppfærslu á forritinu en beðið er eftir að Apple hleypi uppfærslunni í gegn. Lykilorð notenda QuizUp eru fyllilega örugg og engar af þeim  tengiupplýsingum sem forritið fær frá Facebook eru vistaðar í ódulkóðuðum textaskrám,“ segir í tilkynningunni.

Þá segja forsvarsmenn Plain Vanilla að vinaupplýsingar notenda QuizUp séu aldrei geymdar á netþjónum fyrirtækisins og þær séu aðeins notaðar tímabundið til að hjálpa notendum að finna vini til að keppa við. „Starfsfólk Plain Vanilla hefur farið ítarlega yfir öryggi og friðhelgismál QuizUp í kjölfar umfjöllunarinnar. Rétt er að skýra frá því að það fundust nokkrar smávægilegar villur og hafa þær í kjölfarið verið lagaðar,“ segir í yfirlýsingunni.

Tilkynning Plain Vanilla í heild:

„Í grein sem birtist í gær eftir Kyle Richter (höfund leiksins Trivium sem er spurningaleikur fyrir iPhone sem kom út fyrr á þessu ári) og vitnað hefur verið til í erlendum fjölmiðlum koma fram nokkrar rangfærslur.  Í greininni segir hann QuizUp senda gögn í ódulkóðuðum textaskrám. Þetta er ekki rétt. Gögn eru aldrei send ódulkóðuð til eða frá netþjónum Plain Vanilla. Öll samskipti á milli QuizUp notenda og netþjóna Plain Vanilla eru kóðuð með SSL-dulkóðun. Vegna galla í hugbúnaðarsafni frá þriðja aðila var þessi dulkóðun ekki fullnægjandi í örfáum tilvikum. Tekið hefur verið á þessu vandamáli með uppfærslu á forritinu en beðið er eftir að Apple hleypi uppfærslunni í gegn. Lykilorð notenda QuizUp eru fyllilega örugg og engar af þeim  tengiupplýsingum sem forritið fær frá Facebook eru vistaðar í ódulkóðuðum textaskrám.

Vinaupplýsingar notenda QuizUp eru aldrei geymdar á netþjónum okkar og við notum þær aðeins tímabundið til að hjálpa notendum að finna vini til að keppa við. Starfsfólk Plain Vanilla hefur farið ítarlega yfir öryggi og friðhelgismál QuizUp í kjölfar umfjöllunarinnar. Rétt er að skýra frá því að það fundust nokkrar smávægilegar villur og hafa þær í kjölfarið verið lagaðar.

Helstu atriði:

•       Öll samskipti eru og hafa ávallt verið dulkóðuð á milli vefþjóns og síma. Það þýðir að samskiptin eru bara læsileg af þeim sem sendir og þeim sem tekur á móti upplýsingum. Við notumst við sömu öryggisstaðla og önnur fyrirtæki sem meðhöndla viðkvæmar upplýsingar.

•    Í ljós kom að ákveðnum notendaupplýsingum var að óþörfu deilt á milli notenda. Samskiptin sjálf eru dulkóðuð þannig að þriðji aðili getur ekki greint þau, en í samskiptum á milli tveggja notenda var hægt að sjá notendaupplýsingar ef menn gerðu ákveðnar breytingar á forritinu (breytingar sem krefjast töluverðrar tækniþekkingar). Þessu hefur þegar verið breytt og vefþjónar voru uppfærðir með lagfæringum um klukkutíma eftir að þetta kom í ljós.

•         Facebook upplýsingar fólks eru öruggar og Plain Vanilla hefur ekki brotið neina skilmála Facebook. Upplýsingar frá Facebook eru einungis notaðar til að stofna nýjan reikning, sækja mynd, nafn og fleira slíkt.

•         Verið er að breyta þeim hluta forritsins sem vistaður er á símanum svo að það dulkóði vinaupplýsingar áður en þær eru sendar á netþjóna okkar.

•         Að lokum skal áréttað varðandi notkun QuizUp á símaskrárupplýsingum að til að auðvelda fólki að finna vini í leiknum er netfang þeirra borið saman við notendagrunn á vefþjónum okkar. Eftir þessa aðgerð vistum við engar upplýsingar, hvorki á vefþjónunum eða á símunum sjálfum. Við biðjum um leyfi notandans fyrst og teljum okkur ekki vera að brjóta í bága við persónuvernd með þessari aðferð. Engu að síður höfum við fundið betri leið til að framkvæma þennan samanburð á gögnum, þ.e.a.s. með því að dulkóða netföngin bæði á vefþjóninum og í símtækinu áður en samanburðurinn á sér stað. Með því er tryggt að netföng geti aldrei verið læsileg vefþjónum okkar.

Plain Vanilla vinnur nú hörðum höndum að því að þróa enn öflugri friðhelgisstillingar til að tryggja að allir geti notið þess að spila QuizUp áhyggjulausir. Við þökkum fyrir þær ábendingar sem komið hafa fram en vitum um leið að öllum nýjum leikjum fylgja villur. Forgangsatriði er að tryggja að QuizUp-samfélagið verði ávallt öruggur staður fyrir notendur að skemmta sér, fræðast og eiga samskipti.“