Play var stundvísasta félagið á Keflavíkurflugvelli í ágúst, annan mánuðinn í röð, með 98% flugferða á réttum tíma. Í mánuðinum flutti Play 17.296 farþega, næstum tvöfalt fleiri en í júlí þegar félagið flutti 9.899 farþega. Sætanýting jókst á milli mánaða og var 46,3% í ágúst, samanborið við 41,7% í júlí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play en þar segir að árangur félagsins í ágúst, sem er annar mánuður félagsins í fullum rekstri, hafi verið mjög góður miðað við stöðuna á markaði. Play hóf starfsemi í miðjum heimsfaraldri og gera áætlanir félagsins ráð fyrir því að eftirspurn sveiflist til með þróun faraldursins.

Fram kemur að í byrjun ágúst hafi þegar verið farin að sjást teikn á lofti um viðsnúning á þeirri þróun sem átti sér stað um miðjan júlí þegar ný bylgja kórónuveirunnar skall á hér á landi. Eftir því sem mánuðurinn leið jókst eftirspurn, sérstaklega meðal íslenskra farþega, og óskir um breytingar á ferðadagsetningum snarminnkuðu.

Hvað sumarleyfisáfangastaði Play varðar þótti eftirspurn áfram vel yfir væntingum í ágúst. Þá hafi eftirspurn einnig aukist meðal erlendra farþega, en síðustu vikur mun fyrirtækið hafa unnið markvisst að því að markaðssetja sig á erlendum mörkuðum.

Betri kjör en ráðgert var

Líkt og Viðskiptablaðið fjallaði um fyrir skemmstu, undirritaði Play tvær viljayfirlýsingar við tvo alþjóðlega flugvélaleigusala í ágúst. Þessar ráðstafanir munu stækka flota félagsins úr þremur flugvélum í níu fyrir sumarið 2023 og verður félagið með sex flugvélar í flotanum vorið 2022 þegar félagið hefur flug vestur um haf. Félagið mun jafnframt vera langt á veg komið í viðræðum um leigu á tíundu flugvélinni auk þess sem viðræður um viðbætur við flotann fyrir 2024 og 2025 standa yfir, en hann mun telja 15 vélar í lok árs 2025.

Ráðstafanirnar munu gera Play kleift að nýta þau hagstæðu kjör sem bjóðast við núverandi markaðsaðstæður vegna COVID-19, en kjör á þessum samningum munu vera betri en gert var ráð fyrir í viðskiptaáætlunum félagsins.