Play mun hefja áætlunarflug til Boston og Baltimore næsta vor að því er fram kemur í viðtali við Birgi Jónsson, forstjóra Play, í Boston Globe. Auk þess mun félagið bjóða upp á flug til 23 borga í Evrópu. Fleiri áfangastöðum á austurströnd Bandaríkjanna verði bætt við síðar meir.

Í umfjöllun miðilsins segir að félagið sé að fylla upp í gat sem Wow air skyldi eftir sig og því velt upp hvort félagið muni lifa lengur en Wow, enda sé viðskiptalíkanið það sama og félaginu stýrt af gömlum lykilstarfsmönnum Wow.

Birgir svarar því til að Play ætli að læra af reynslu og mistökum Wow. Viðskiptalíkanið með tengimiðstöð í Keflavík á milli Evrópu og Bandaríkjanna hafi sannað sig. „Viðskiptalíkan Wow virkaði mjög vel þar til fyrirtækið fór út fyrir það," segir Birgir og bætir við að Wow hafi tekið breiðþotur í notkun og flogið til vesturstrandar Bandaríkjanna, Indlands og Ísrael. Hann segir að Play muni ekki innleiða fyrsta farrými líkt og Wow bauð upp á um tíma. Þá hafi Play ekki væntingar um að vaxa jafn hratt og Wow.

Miðasala hefst í dag

Play mun fljúga til Logan flugvallar í Boston og Baltimore/Washington International flugvallar á milli Baltimore og Washington D.C. Fyrsta flug Play til Baltimore/Washington verður 20. apríl á næsta ári og 11. maí til Boston. Í tilkynningu Play kemur fram að flugfélagið hafi fengið öll tilskilin leyfi til að hefja flug til Bandaríkjanna frá bandarískum flugmálayfirvöldum.

Flugfélagið segir að þessi áfangi sé afar þýðingarmikill því nú tekur við næsti kafli í sögu félagsins með því að bæta við tengifarþegum yfir Atlantshafið og stækka markaðssvæðið.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Það er hreint út sagt magnað að horfa upp á árangur Play nú þegar við höfum náð markmiði okkar um að hefja sölu á flugi til Bandaríkjanna. Síðustu mánuðir hafa verið virkilega krefjandi á þessum óvissutímum sem stafa af kórónuveirufaraldrinum og við værum aldrei komin á þennan stað nema með ótrúlegu baráttuþreki starfsfólks Play sem hefur aldrei látið deigan síga.

Þá er ég afskaplega stoltur af því að áætlanir um stækkun leiðakerfis okkar hafi gengið upp í þessu árferði. Árangurinn er öflugt flugfélag sem mun bjóða Íslendingum ódýrari valkost í flugi til Bandaríkjanna. Við finnum fyrir miklum ferðahug, bæði hér á landi og erlendis, en kannanir sýna að tveir þriðju Bandaríkjamanna eru að skipuleggja næsta frí með erlenda áfangastaði efst í huga.

Nú getum við loksins boðið flug til og frá Boston og Washington D.C. þannig að ferðalangar geta komist til Íslands og yfir Atlantshafið á viðráðanlegu verði og notið dvalarinnar á áfangastað án þess að þurfa eyða of miklu til að komast þangað.“

Fréttin var uppfærð eftir að Play sendi frá sér fréttatilkynningu.