Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarflugi til Varsjár, höfuðborgar Póllands. Fyrsta flugið verður 3. apríl 2023 en flogið verður tvisvar í viku fram til loka október 2023.

„Þetta er spennandi skref sem við tökum hjá Play með því að fljúga til Varsjár. Þetta er borg sem lætur engan ósnortinn og ég er sannfærður um að hún mun ekki aðeins höfða til þeirra rúmlega 20 þúsund Pólverja sem búa á Íslandi heldur einnig Íslendinga sjálfra,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

„Þetta er fimmti nýi áfangastaðurinn sem við kynnum á skömmum tíma sem byggir undir metnaðarfullt leiðakerfi sem við munum bjóða upp á árið 2023.“