Flugfélagið Play hefur undirritað samning við alþjóðlega flugvélaleigusalann GECAS um leigu á þremur A320neo flugvélum og einni A321NX flugvél. Vélarnar verða afhentar frá hausti 2022 til vors 2023, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Play hafði greint frá undirritun viljayfirlýsingar við GECAS í lok ágúst en hefur nú gengið frá leigusamningum.

Í ágúst undirritaði Play einnig viljayfirlýsingu við annan alþjóðlegan flugvélaleigusala um leigu á tveimur A320neo flugvélum sem verða afhentar vorið 2022. Þessar ráðstafanir stækka flota Play úr þremur flugvélum í níu fyrir sumarið 2023. Þá segist flugfélagið vera langt að veg komið í viðræðum um leigu á tíundu flugvélinni.

„Kjör á þessum samningum eru betri en gert var ráð fyrir í viðskiptaáætlunum félagsins,“ segir í tilkynningu Play í lok ágúst þegar greint var frá viljayfirlýsingunum. Í fjárfestakynningu Play fyrir skráningu á markað í sumar kom fram að félagið sé með fyrstu þrjár vélarnar á langtímasamningi og á 24% lægra leiguverði heldur í samanburði við verðlagningu fyrir Covid.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Við erum mjög ánægð með að bæta vélum í flotann. Langtímamarkmið okkar er að gera Play að leiðandi flugfélagi og samningurinn við GECAS er enn eitt skref í þá átt. Við erum meðvitað að taka ákvarðanir með umhverfissjónarmið í huga og er val á þessum flugvélum til marks um það.“