Uppsjávarskipið Polar Amaroq er statt við línuna á milli Íslands og Grænlands og leitar loðnu. Heimasíða Síldarvinnslunnar hafði samband við skipið í morgun og ræddi við Ólaf Sigurðsson, stýrimann. Ólafur var fyrst spurður hvort vart hefði orðið við loðnu.

„Við erum hérna Grænlandsmegin við línuna og það eina sem við höfum séð núna er smáryk. Við erum bara einir að leita á gríðarlega stóru hafsvæði og vissulega væri betra ef hér væru fleiri skip. Þetta er þolinmæðisverk. Nú er búið að leita í sólarhring en við þurftum að leita hafnar á Akureyri vegna brælu. Við hófum leitina fyrir bræluna og tókum þá fjögur hol. Aflinn var ekki mikill eða 10 til 70 tonn í holi. Loðnan var fryst um borð og því eru um 110 tonn af frystri loðnu í skipinu. Það er búið að mæla tvær milljónir tonna af loðnu og hún er einhvers staðar. Það er bara tímaspursmál hvenær við rekumst á hana. Menn eru afar bjartsýnir fyrir komandi vertíð en gott væri ef fleiri skip kæmu til leitar,“ segir Ólafur.