Danska blaðið Politiken sendir myndbandskveðju til hetjanna á Evrópumeistaramótinu eins og þeir kalla þá.

Hefst kveðjan á ákalli um sigur og kalla þeir strákana okkar, „vores drenge“ og segja þá þurfa á miklum stuðningi að halda til að komast í undanúrslitin.

Senda þeir því myndbandskveðju þar sem víkingakveðjan svokallaða er tekin á ráðhústorginu í Danmörku.