Victor Ponta, forsætisráðherra Rúmeníu og ríkisstjórn landsins hefur sagt af sér í kjölfar eldsvoða í næturklúbbi þar sem 32 manns létu lífið. Eldurinn kviknaði út frá flugeldum sem hljómsveit kvöldins notaði í tónleikunum.

Um það bil 20 þúsund manns tóku þátt í mótmælaaðgerðum í kjölfar brunans í gær, en mikil óánægja er vegna spillingar og lélegs öryggiseftirlits stjórnvalda.

Ponta var kærður í september sl. fyrir svik, skattaundanskot og peningaþvætti en hann hefur hafnað þeim ásökunum sem á hann voru bornar. Ponta sagði að hann vonaðist til að afsögnin myndi nægja til að lægja öldurnar.