Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri mun framleiðandi Porsche bifreiða skila meiri hagnaði á árinu en reiknað var með.

Framleiðandi Porsche á 31% í Volkswagen en beðið er eftir uppgjöri frá Volkswagen til þess að hægt sé að staðfesta hvort hagnaðurinn sé meiri en reiknað var með.

Stjórn Porsche er sögð íhuga breytingar á rekstri Volkswagen þannig að fyrirtækið verði brotið upp í deildir sem hver um sig sjái um framleiðslu á mismunandi bílategund en Volkswagen framleiðir í dag auk Volkswagen, Audi, Porsche, Skoda, Seat, Bentley, Bugatti og Lamborghini