Íslenska samheitalyfjafyrirtækið Portfarma hefur skrifað undir samning við Grindeks, eitt stærsta lyfjasölufyrirtæki í Eystrasaltsríkjunum, um dreifingu og sölu á lyfjum fyrirtækisins í nær öll apótek í Eistlandi, Lettlandi og Litháen.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar segir að verðmæti samningsins hlaupi á hundruðum milljóna íslenskra króna á ári. Einnig sé unnið að því í samvinnu við Grindeks að koma á dreifingu til fleiri ríkja þar í grennd.

„Samningurinn þýðir miklar gjaldeyristekjur fyrir Portfarma og um leið íslensku þjóðina,“ segir í tilkynningunni.

Portfarma var stofnað árið 2005 og er nú þegar komið með markaðsleyfi fyrir á þriðja tug lyfja á Íslandi. Fyrirtækið gerir ráð fyrir því að vera komið með rúmlega 100 lyf á markað hérlendis innan skamms. Hjá fyrirtækinu starfa 7 manns, auk fjölda verktaka en framleiðslan fer fram í 7 löndum.

Meiri samkeppni þýðir lægri lyfjakostnað fyrir Íslendinga

„Tilkoma Portfarma á íslenskan markað hefur stuðlað að lægri lyfjakostnaði,“ segir í tilkynningunni.

„Aukin samkeppni á milli lyfjaframleiðenda og meira framboð af ódýrari samheitalyfjum hefur lækkað lyfjakostnað og fastlega má gera ráð fyrir að kostnaður sjúklinga sem og Sjúkratryggingasjóðs væri mun hærri ef aukið framboð samheitalyfja frá aðilum eins og Portfarma hefðu ekki komið til. Samfélagslegur ávinningur er því mikill, en í öllum tilfellum hefur það gerst að þar sem Portfarma hefur sett lyf markað hefur verð á samkeppnislyfjum lækkað, yfirleitt um tugi prósenta.“