Post Danmark H/F hefur keypt 51% hlut í Transportgruppen H/F í lokuðu hlutafjárútboði, að því er fram kemur í tilkynningu. En Post Danmark H/F sér um dreifingu á danska fríblaðinu Nyhedsavisen, sem er í eigu Dagsbrúnar Media.
"Með þessu samkomulagi verður Post Danmark heildstæðasti flutningsaðilinn á danska markaðnum. Í samstarfi við flutningsaðilana í Transportgruppen munum við geta boðið viðskiptavinum okkar heildstæða lausn sem felur í sér bæði hraðsendingar, pakkasendingar og flutning á stykkjavöru í öllum stærðarflokkum og enn sem fyrr með gæði í fyrirrúmi. Þar að auki munum við geta boðið upp á fjölmargar nýjungar," segir Carsten Dalbo, aðstoðarframkvæmdastjóri Post Danmark.
Þessi kaupin gefur Post Danmark aðgengi að þéttriðnu og afkastamiklu vöruflutninganeti Transportgruppen sem nær um allt land. Transportgruppen hefur yfir að ráða vöruflutningamiðstöðvum í Bröndby og Taulov eins og Post Danmark og 80.000 fermetra lagerhótelum í Kaupmannahöfn og Árósum. Með tengslunum við flutningsaðilana hafa þeir aðgang að 18 staðbundnum vöruflutningamiðstöðvum og 900 einungum á hjólum. Transportgruppen, sem árið 2006 velti um það bil 280 milljónum danskra króna, er með um það bil 1.100 manns í vinnu hjá flutningsaðilum og í fyrirtækinu sjálfu.
"Í Post Danmark fáum við faglegan samstarfsaðila, sem getur tekið þátt í að þróa fyrirtækið okkar og færa okkur aukin umsvif. Samstarfið mun hafa þýðingu fyrir báða aðila og styrkja sameiginlega stöðu okkar á pakka- og vöruflutningamarkaðnum. Það mun líka koma viðskiptavinunum ? bæði hjá Post Danmark og hjá okkur ? til góða," segir framkvæmdastjóri Transportgruppen, Peter Odorico.
Hann mun ásamt öðrum stjórnendum í Transportgruppen vera áfram í forsvari fyrir fyrirtækinu og þróun þess á næstu árum. Það er mat Post Danmark og Transportgruppen, að hinn nýi samstarfssamningur muni skila samlegðaráhrifum. Þetta á til dæmis við um söluþáttinn og nýtingu á styrkleikum fyrirtækjanna tveggja á mismunandi sviðum annars vegar innan pakka- og hins vegar vöruflutningasviðsins.