Póstdreifing
Póstdreifing
Póstdreifing hefur keypt fjóra nýja Mercedes- Benz Sprinter sendibíla sem ganga fyrir metani. Póstdreifing stefnir að því að umhverfisvæða bílaflota sinn með því að velja bifreiðar sem ganga fyrir umhverfisvænu eldsneyti. Bílarnir eru sérpantaðir fyrir Póstdreifingu og sérútbúnir til dreifingarþjónustu. „Metanbílar eru hagkvæmari í eldsneytiskaupum og bera lægri vörugjöld í innkaupum sem skilar sér í hagkvæmari verðum til viðskiptavina,“ segir Örn Jóhannson, deildarstjóri akstursdeildar Póstdreifingar.