Pósturinn og Innovit undirrituðu í dag samning um stuðning við nýsköpun á háskólastigi. Fram kemur í tilkynningu frá Innovit að samningurinn sé tvíþættur og feli í sér að Pósturinn verði einn af styrktar- og samstarfsaðilum Frumkvöðlakeppni Innovit 2008. Þar að auki mun þverfaglegur hópur háskólanema mun vinna viðamikið nýsköpunarverkefni sem snýr að framtíðarviðskiptaþróun hjá Póstinum.

„Frumkvöðlakeppni Innovit er keppni í gerð viðskiptaáætlana sem nú er haldin í fyrsta sinn fyrir íslenska háskólanemendur að erlendri fyrirmynd. Nú eru 18 viðskiptahugmyndir komnar í undanúrslit en yfir 100 viðskiptahugmyndir voru skráðar til leiks í fyrsta áfanga keppninnar. Í keppninni er lögð megináhersla á að þjálfa upp frumkvöðla og framtíðarstjórnendur íslenskra fyrirtækja úr röðum háskólamenntaðs fólks, en á meðan keppni stendur bjóðast keppendum námskeið og ráðgjöf frá starfsmönnum Innovit," segir í tilkynningu.