Íslandspóstur og Já hafa samið um dreifingu og afhendingu símaskrárinnar á landsbyggðinni.

Samningurinn felur í sér afhendingu símaskrárinnar á pósthúsum á kjarnastöðum, á pósthúsum í samstarfi, afhendingu símaskrár í dreifbýli og sölu á harðspjaldasímaskrám.

Einnig taka pósthúsin á landsbyggðinni við gömlum símaskrám til endurvinnslu.