Pósturinn og Breiðablik hafa undirritað samstarfssamning þess efnis að Pósturinn styrki körfuknattleiksdeild Breiðabliks.
Í tilkynningu vegna samningsins segir að Pósturinn verði styrktaraðili körfuknattleiksdeildar Breiðabliks og skrifuðu Guðmundur Sigurbergsson frá Breiðablik og Anna Katrín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Markaðs- og sölusviðs Íslandspósts á dögunum undir samning þess efnis, en samningurinn er til tveggja ára.
Hið árlega mót deildarinnar sem haldið er í janúar ár hvert, mun því heita Póstmótið og er það körfuknattleiksmót fyrir 11 ára börn og yngri.
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur haldið þetta mót árlega síðustu 9 ár og hefur það áunnið sér sess sem eitt af þremur stærstu körfuknattleiksmótum á landinu ár hvert.