Poul Christoffer Thomassen hefur verið ráðinn tryggingastærðfræðingur hjá Vátryggingafélagi Íslands (VÍS).

Hjá VÍS mun hann meðal annars koma að rekstri vátrygginga, afkomu þeirra og bera ábyrgð útreikningi vátryggingaskuldar. Þá mun hann starfa náið með áhættustýringu til þess ganga úr skugga um að áhættustýrikerfi félagsins sé skilvirkt, sér í lagi varðandi útreikning áhættu vegna gjaldþolskrafna og vegna eigin áhættu- og gjaldþolsmats.

Poul, sem er frá Færeyjum, hefur fjölbreytta reynslu sem tryggingastærðfræðingur. Meðal annars var hann tryggingastærðfræðingur hjá danska tryggingafélaginu Quodos, leiddi tryggingafræðilegt ráðgjafarteymi hjá Deloitte í Danmörku og var framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá TF Holding.

Poul er með Cand. Act-gráðu í tryggingastærðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla (Københavns Universitet) ásamt framhaldsmenntun í viðskiptafræði (HD1) frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School). Hann er jafnframt með CERA-vottun sem er alþjóðleg vottun í áhættustýringu fyrir tryggingastærðfræðinga. Hann hefur nú þegar hafið störf.

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS segist afar ánægður með ráðningu Pouls Christoffer.

„Hann býr yfir umfangsmikilli þekkingu og reynslu sem á eftir að styrkja félagið enn frekar. Á undanförnum mánuðum höfum við séð hvað fjarvinna hefur gengur vel og sú þróun mun halda áfram, ekki síst hjá okkur. Poul Christoffer mun því starfa jöfnum höndum í Reykjavík og frá Þórshöfn í Færeyjum þar sem hann býr ásamt fjölskyldu sinni,“ segir Helgi.