Upplýsingatæknifélögin Fjölnet og PREMIS hafa náð samkomulagi um samruna. Félögin munu starfa undir nafni PREMIS með starfsstöðvar á Sauðárkróki og í Reykjavík. Við viðskiptin verða Sigurður Pálsson og Pétur Ingi Björnsson eigendur Fjölnets starfandi hluthafar PREMIS.

Sérsvið félagana er rekstur tölvukerfa (e. Managed Service Provider), alrekstursþjónusta og hýsing. Auk þess sinna félögin fjölbreyttri þjónustu á sviði upplýsingatækni. Áætluð velta sameiginlegs félags á árinu 2021 er á annan milljarð og starfsmenn verða ríflega fimmtíu talsins.

„Það er mikil samlegð með rekstri þessara félaga og í krafti aukinnar stærðar munum við geta boðið enn betri þjónustu og aukið lausnaframboð á frábærum verðum. Við náum einnig að mæta aukinni kröfu um öryggisfjarlægðir með hýsingu gagna bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. Fjölnet eykur okkar þekkingu og á sama tíma vonumst við til að geta boðið enn betri þjónustu á Norðurlandi með þessari sameiningu“, er haft eftir Kristni Elvari Arnarsyni , forstjóra PREMIS, í fréttatilkynningu.

„Við sjáum mikil tækifæri í þessari sameiningu og hlökkum til að kynna viðskiptavinum aukið lausnaval sem við getum nú boðið upp á. Einnig er mikilvægt fyrir okkur að með þessu styrkjum við hýsingarsal okkar á Sauðárkróki og er ánægjulegt að geta aukið uppbyggingu á sviði upplýsingatækni á Norðurlandi“, segir Sigurður Pálsson , framkvæmdastjóri Fjölnets.