Prentmet ehf. hefur keypt útgáfurétt að Framkvæmdabókinni á íslensku og minnisbókinni Action Day.

Prentmet mun sjá um kynningu verksins, sölu og dreifingu á markaði.

Höfundur bókanna er Þorsteinn Garðarsson.

„Allt frá upphafi hefur Framkvæmdabókin verið prentuð hjá Prentmeti og hefur samstarf á milli aðila verið eins og best verður á kosið. Það hefur m.a. leitt til þess að höfundur og stjórnendur Prentmets ákváðu að stíga fyrrnefnt skref til að efla útgáfuna enn frekar,“ segir í fréttatilkynningu frá Prentmeti.