Primera Air  hefur stofnað nýtt flugfélag í Lettlandi  sem ber nafnið Primera Air Nordic. Búist er við að öll nauðsynleg leyfi liggi fyrir í byrjun október og hefst flugrekstur í nóvember undir merkjum nýja félagsins.

Fram kemur í tilkynningu að ástæða þess að félagið fær nýtt flugrekstrarleyfi er fjöldi nýrra verkefna sem Primera Air hefur aflað sér, ásamt meiri sveigjanleika í flugrekstri en hægt er að bjóða uppá með eingöngu dönsku flugrekstrarleyfi.

Í haust munu nýjar skrifstofur félagsins í Riga verða teknar í gagnið og er þá ráðgert að hluti starfseminnar sem hingað til hefur verið á Íslandi og  tengist beint framleiðslu verði staðsettur í Lettlandi til að geta samþætt starfsemi Primera Air Scandinavia og Primera Air Nordic.

Nánar verður greint frá breytingum þar að lútandi á næstu vikum.  Reiknað er með að skrifstofur félagsins í Riga geti sinnt þörfum beggja félaga flugfélagsins, að því er segir í tilkynningunni.